Eftirstöðvar veiðiskyldu

Deila:

Fiskistofa hefur tekið saman upplýsingar um skip og sent á starfrænt pósthólf þeirra aðila sem eiga skip sem enn hafa ekki uppfyllt veiðiskyldu, þ.e. að veitt 50% af úthlutuðu aflamarki og aflamarki sem flutt var af fyrra ári. Þetta kemur fram á vef stofnunarinnar.

„Skip sem fá úthutað aflamark er skylt að veiða amk 50% af úthlutuðu aflamarki annars falla aflahlutdeildir skipsins niður. Hægt er að fá undanþágu frá veiðiskyldunni ef skip tefst frá veiðum í amk. 4 mánuði vegna tjóns eða meiriháttar bilana.

Fiskistofa hefur tekið saman upplýsingar um skip sem enn hafa ekki uppfyllt veiðiskyldu, þ.e. að veitt 50% af úthlutuðu aflamarki og aflamarki sem flutt var af fyrra ári. Þeir aðilar sem eiga skip sem ekki hafa uppfyllt veiðiskyldu hafa fengið tilkynningu þess efnis sent inn á pósthólf viðkomandi á island.is. Alls fengu 145 aðilar tilkynningu um að ekki væri búið að uppfylla veiðiskylduna.

Upplýsingar um veiðiskyldu skipa eru fundnar með því að fletta upp skipi í gegnum hnappinn skipaleit á vefsíðu Fiskistofu eða á gagnasíðum. Staða veiðiskyldu fyrir skipið sést þegar ýtt er á hnappinn aflamark.”

Deila: