Rýna í sjö umsóknir vegna sjókvíaeldis

Deila:

Matvælastofnun leggur nú mat á sjö umsóknir sem borist hafa um ný rekstrarleyfi fyrir sjókvíaeldi. Þrjár þeirra eru á Austfjörðum en fjórar á Vestfjörðum. Viðskiptablaðið greinir frá þessu.

Í fréttinni kemur fram að Matvælastofnun sé að skoða hvort fjórar af þessum sjö umsóknum um ný rekstrarleyfi til sjókvíaeldis falli utan skurðarpunkts laganna 19. júlí 2019 eða ekki. Falli þær utan skurðpunkts verður þeim umsóknum hafnað. Þær sem eru innan skurðpunkts verða afgreiddar.

Deila: