Um úthlutun og millifærslu aflaheimilda

Deila:

Fiskistofa birtir á vef sínum í dag frétt um framkvæmd úthlutunar og millifærslu aflamarks um fiskveiðiáramót, eins og það er orðað í frétt. Nýtt fiskiveiðiár hefst 1. september. Aðilar eru hvattir til að kynna sér framkvæmd á úthlutun og millifærslum komandi fiskveiðiárs.

Úthlutun

Aflamarki verður úthlutað til skipa sem eru með aflahlutdeildir í tegundum sem fylgja fiskveiðiárinu en í deilistofnum um áramót. Tilkynningar um úthlutun aflamarks verða sendar í stafrænt pósthólf útgerða á Ísland.is.

Millifærslur aflamarks

Fiskistofa vekur athygli á því að fyrsta hálfa mánuð nýs fiskveiðiárs verður hægt að færa aflamark milli skipa bæði vegna fiskveiðiársins 2022/2023 og fiskveiðiársins 2023/2024. Millifærslur sem gerðar eru í rafræna millifærslukerfinum fram til 16. september gilda fyrir aflamark sem úthlutað var fyrir fiskveiðiárið 2022/2023.

Athugið

  • Aflafærslur sem eiga að gilda fyrir nýtt fiskveiðiár þarf að senda á millifaerslur@fiskistofa.is á þar til gerðu eyðublaði.

  • Tekið er gjald fyrir aflamarksfærslu í samræmi við gjaldskrá stofnunarinnar.

  • Frá og með 16. september verður hægt að millifæra aflamark í gegnum rafræna kerfið fyrir fiskveiðiárið 2023/2024.

  • Taka skal fram á eyðublaði sem sent er til Fiskistofu fyrir hvort aflamarksfærslan eigi að taka gildi á árinu 2022/2023 eða 2023/2024.

Deila: