Gullver landaði 95 tonnum

Deila:

Ísfisktogarinn Gullver NS kom til heimahafnar á Seyðisfirði á mánudag og landaði 95 tonnum, að því er greinir á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Uppistaða aflans var þorskur, ýsa og karfi.

Rætt er við Steinþór Hálfdánarson í fréttinni og ber hann að veiðar hafi gengið vel. „Þetta var sami hringur hjá okkur og oft áður. Við byrjuðum að veiða á Herðablaðinu, síðan var veitt Utanfótar, í Hvalbakshalli, í Berufjarðarál, á Papagrunni og í Lónsdýpinu. Loks var endað í Reyðarfjarðardýpinu en þar var lítið að hafa. Eins og fyrr í sumar var blíðuveður. Það verður að segjast að veðrið í nánast allt sumar hefur verið býsna gott og ekki yfir neinu að kvarta í þeim efnum. Haldið var til veiða strax að löndun lokinni en þessi túr verður stuttur, svokallaður stubbur, og við gerum ráð fyrir að landa á ný á fimmtudag. Þá tekur við slippur hjá skipinu og þar verður framkvæmd 40 ára skoðun á því,“ er haft eftir Steinþóri.

Deila: