Samstæða Samherja hagnaðist um 14 milljarða í fyrra

Deila:

Baldvin Þorsteinsson hefur verið kjörinn nýr stjórnarformaður Samherja. Hann mun starfa með föður sínum, Þorsteini Má Baldurssyni forstjóra. „Ég er þakklátur fyrir það traust sem mér er sýnt og er stoltur að taka við sem formaður stjórnar Samherja hf. Ég byrjaði fyrst að vinna hjá félaginu ungur að árum og hef unnið margvísleg ólík störf hjá því gegnum árin. Ég hlakka til að starfa með föður mínum og öllu því frábæra starfsfólki sem er hjá Samherja hf. að áframhaldandi uppbyggingu fyrirtækisins,“ er haft eftir Baldvini.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Eiríkur S. Jóhannsson hefur látið af störfum sem stjórnarformaður en hann hefur átt sæti í stjórn frá 2001.

Þá segir í tilkynningunni að rekstrarhafnaður Samherja hafi numið 9,9 milljörðum króna á árinu 2022. Það sé aukning um 800 milljónir á milli ára. Enn fremur segir að rekstrarhagnaður af samstæðu Samherja, þegar tekið hefur verið tillit til afkomu hlutdeildarfélaga og fjármagnsliða hafi numið 14,3 milljörðum króna eftir skatta.

Á aðalfundinum var ákveðið að greiða skyldi út arð til hluthafa félagsins sem næmi 3,7 prósent hagnaðar ársins. Jafnvirði þess er 558 milljóna króna. Tekið er fram að það sé í fyrsta skipti í fjögur ár sem greiddur er arður til hluthafa.

Deila: