Hafró vill ráða fiskifræðing

Hafrannsóknastofnun leitar eftir sérfræðingi í fiskifræði að því er fram kemur í auglýsingu á vef stofnunarinnar. Sérfræðingurinn mun starfa við rannsóknir á sviði fiskifræði. Starfið snýr einkum að gagnarýni, rannsóknum á lífssögu tegunda og mati á stofnstærð hryggleysingja. Leitað er að einstakling sem hefur góða færni til að vinna í þverfaglegri teymisvinnu. Umsækjendur þurfa að hafa reynslu af rannsóknum og birtingu niðurstaðna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þátttaka í stofnmati og ýmsum rannsóknarverkefnum sem tengjast fiskifræði og vistfræði.
- Úrvinnsla gagna, skipulagning rannsóknaleiðangra og samskipti við hagaðila.
- Birting niðurstaðna í vísindagreinum, skýrslum og erindum.
Hæfniskröfur
- Meistarapróf í fiskifræði, tölfræði, stærðfræði eða skyldum greinum er skilyrði. Doktorspróf er kostur.
- Reynsla af rannsóknum á sviði fiskifræði er kostur.
- Reynsla af birtingu rannsóknaniðurstaðna.
- Metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Jákvætt viðmót, samstarfsvilji og hæfni til að vinna í teymi.
- Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á ensku.
Nánar um starfið og umsóknarferlið má finna á vefnum okkar.
Hægt er að sækja um starfið í gegnum Starfatorg til og með 26. september 2023.