Hvalveiðar hafnar
Hvalur 8 og 9, hvalveiðiskipt Hvals hf., hafa nú lagt úr Reykjavíkurhöfn og eru farnir á hvalveiðar.
Þetta gerðist í kjölfar þess að aðgerðarsinnar, Anahita Sahar Babaei og Elissa Bijou, sem höfðu hlekkjað sig fasta í möstrum skipanna í tæpan einn og hálfan sólarhring, ákváðu að láta staðar numið.
Hvalveiðibanni lauk þegar september gekk í garð en mótmælin voru til komin þeirrar ákvörðunar matvælaráðherra.