Rýmdu frystihús og fiskimjölverksmiðju

Deila:

Síðdegis í gær voru hús við Strandarveg og Hafnargötu á Seyðisfirði rýmd í öryggisskyni vegna mikillar úrkomu og hættu á aurflóðum. Bæði frystihús og fiskimjölsverksmiðja Síldarvinnslunnar eru á rýmingarsvæðinu. Frá þessu er greint á vef Síldarvinnslunnar.

Rætt er við Ómar Bogason rekstrarstjóra frystihússins í fréttinni. Hann segir að lokið hafi verið við að vinna allan fisk í frystihúsinu eftir hádegið í gær og þá hafi fólk verið sent heim. Fiskur verði ekki tekinn til vinnslu fyrr en veðrið gangi niður. „Engin vinnsla var í fiskimjölsverksmiðjunni en hins vegar var unnið þar við tankasmíði. Hlé var gert á þeim framkvæmdum í gær,” segir í fréttinni.

Deila: