Veður setur strik í kolmunaveiðar

Deila:

Barði NK kom með 2140 tonn af kolmunna til Neskaupstaðar á sunnudag og var það annar kolmunnatúr skipsins í Rósagarðinn. Frá þessu greinir á vef Síldarvinnslunnar. Þar segir að í á þriðjudagsmorgun hafi Vilhelm Þorsteinsson EA og Börkur NK komið til hafnar í Neskaupstað vegna veðurs. Vilhelm Þorsteinsson var með 900 tonn af kolmunna og Börkur með 2500 tonn.

Rætt er við Hjörvar Hjálmarsson, skipstjóra á Berki, í fréttinni. „Það er ekki hægt að segja annað en að veiðin gangi vel og það er auðvitað mikilvægt að hún eigi sér stað í Rósagarðinum innan íslenskrar lögsögu. Þessi 2500 tonn sem við komum með fengust í sjö holum. Stærsta holið var um 500 tonn en yfirleitt var dregið í átta til tólf tíma. Við vorum aðeins fjóra daga að veiðum þannig veiðin er bara ágæt. Við vorum mest allan tímann á sama svæðinu í Rósagarðinum eða á milli Bermúda og Vodkakassans. Á svipuðum slóðum voru ein sex eða sjö önnur íslensk skip og tvö færeysk. Það var komið í land vegna veðurs og það verður ekkert veður til veiða fyrr en á föstudag. Haldið verður til veiða á ný strax og veðrið gengur niður og þetta lítur allt saman ágætlega út. Menn hljóta bara að vera brattir og bjartsýnir,“ er haft eftir Hjörvari.

Deila: