Aflaverðmætið 200 milljónir króna

Deila:

Frystitogarinn Blængur NK kom til löndunar í heimahöfn í Neskaupstað á miðvikudagskvöld í liðinni viku, eftir 26 daga túr. Afli skipsins var 620 tonn eða 17 þúsund kassar af frystum fiski. Aflaverðmætið hleypur á 200 milljónum króna. Frá þessu greinir á vef Síldarvinnslunnar.

„Við byrjuðum og enduðum fyrir austan land en í millitíðinni vorum við vestur á Hala. Það var rysjótt veðrið fyrir vestan og við lágum tvisvar í vari undir Grænuhlíð. Aflinn er mest karfi, gulllax og ýsa en minna af öðrum tegundum. Túrinn einkenndist af nuddi og menn bera sig þokkalega þrátt fyrir að fiskverð hafi almennt lækkað verulega upp á síðkastið. Það er hins vegar gleðilegt að það er mikið af fiski á miðunum, einkum er mikið að sjá af þorski, ýsu og karfa. Útlitið er því bara bjart. Ég geri ráð fyrir að það verði klárað að landa úr skipinu í dag og haldið á ný til veiða í kvöld,“ segir Sigurður Hörður Kristjánsson skipstjóri við heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Deila: