Nýjungar í rafrænni vöktun

Deila:

Árið 2022 hafði Fiskistofa frumkvæði að stofnun vinnuhóps um nýjungar í rafrænni vöktun fiskveiða með þátttöku Kanadamanna, Grænlendinga, Færeyinga Norðmanna, Dana , Svía og Breta. Í vikunni lauk tveggja daga vinnustofu í London þar sem þátttakendur í verkefninu funduðu saman í sendiráði Íslands. Þetta kemur fram á vef Hafrannsóknastofnunar. Þar segir að vinnan haldi áfram út árið 2024.

Áætlað er að niðurstöður þessarar vinnu verði kynntar á lokafundi sem fram fer á Íslandi haustið 2024.

Meðfylgjandi mynd sýnir þátttakendur á fundunum í London, og er af vef Hafró.

Deila: