Með 15 þúsund tonn af íslenskri síld

Deila:

Börkur NK kom til hafnar í Neskaupstað skömmu eftir kvöldmat í gær með 1.400 tonn af íslenskri sumargotssíld sem veiddist vestur af landinu. Frá þessu er greint á vef Síldarvinnslunnar.

Rætt er í fréttinni við Ólaf Gunnar Guðnason stýrimann. „Það er fallegasta síld, svipuð og verið hefur. Síldin er 290 – 310 grömm. Við vorum að veiða norðarlega á Látragrunnskantinum, en það er norðar en veitt hefur verið undanfarin ár vestur af landinu. Aflinn fékkst í fjórum holum. Þetta voru þrjú um 400 tonna hol og eitt 150 tonna. Veiðin gekk bara ljómandi vel,“ er haft eftir Ólafi Gunnari.

Að afla Barkar í þessari veiðiferð meðtöldum hafa Síldarvinnsluskipin veitt hátt í 15.000 tonn af íslenskri sumargotssíld á árinu. Megnið af síldinni hefur veiðst vestur af landinu en eins veiddist íslensk sumargotssíld með norsk-íslenskri síld austur af landinu.

Deila: