Ljósleiðari fór líka í sundur

Deila:

Ljósleiðari Vodafone slitinaði þegar Huginn VE dró akkeri skipsins í vatnslögn milli lands og Eyja. Tveimur skipstjórum skipsins hefur verið sagt upp vegna atviksins. Að auki hafa menn áhyggjur af því að skemmdir hafi orðið á einum þeirra þriggja rafstrengja sem liggja frá lands til Eyja. Sennilega sé það þó aflagður strengur.

Hættuástand Almannavarna er í gildi í Vestmannaeyjum. Lögreglan í Vestmannaeyjum fer með rannsókn málsins sem og rannsóknarnefnd sjóslysa.

Deila: