Aflaverðmæti jókst á fyrstu þremur ársfjórðungum

Deila:

Verðmæti afla við fyrstu sölu var 154,5 milljarðar króna á fyrstu þremur fjórðungum ársins 2023 samkvæmt bráðabirgðatölum. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Þar segir að um sé að ræða 3% aukningu frá sama tímabili árið 2022 en þá var aflaverðmæti tæplega 150 milljarðar króna. „Verðmæti botnfisktegunda var um 95 milljarðar króna sem er 7% samdráttur frá fyrra ári. Verðmæti uppsjávarafla nam 49 milljörðum króna sem er 23% aukning frá fyrra ári.”

Magn landaðs afla á fyrstu þremur fjórðungum 2023 var um 1.1 milljón tonn en voru tæp 1.2 milljón tonn árið áður. Samdráttur mældist bæði í botnfiskafla og uppsjávarafla.

Deila: