Kviknaði í bíl í Baldri

Deila:

Björgunaræfing um borð í Breiðafjarðarferjunni Baldri sem fram fór í vikunni gekk vel þrátt fyrir slæmt veður. Að æfingu lokinni reyndi á áhöfnina þegar eldur kom upp í bíl um borð í ferjunni sem var þó ekki á siglingu. Snör viðbrögð urðu til þess að engin slys urðu á fólki og ekkert tjón á skipinu. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar.

Þar segir að 78 manns hafi komið ða æfingunni, grunnskólanemendur, kennarar, starfsfólk Sæferða en einnig fulltrúar öryggisdeild Eimskips, Samgöngustofu, Landsbjörgu og Survitec, fyrirtækinu sem þjónustar björgunarbúnaðinn.

Æfingin gekk að sögn vel þó veðrið væri ekki gott. „Það var vindasamt og sjókoma á köflum, en í raun góðar aðstæður fyrir æfingu sem þessa. Farþegar, þá sérstaklega nemendur grunnskólans, stóðu sig einstaklega vel í erfiðum aðstæðum og virtust ekki láta kuldann á sig fá.”

Loks segir að snör handtök hafi komið í veg fyrir að illa færi þegar eldur kviknaði í bíl í skippinu, sem var þá bundið við bryggju. „Bíllinn, sem er í eigu starfsmanns Sæferða, er hins vegar ónýtur. Slökkvilið Stykkishólmsbæjar og lögreglan kom á vettvang stuttu síðar, þá var bæði búið að slökkva eldinn og koma bílnum frá borði. Skýrsla verður unnin um atvikið og tilkynnt til Samgöngustofu og rannsóknarnefndar sjóslysa. Vegagerðin og Sæferðir munu í samvinnu við fyrrnefnda aðila, fara yfir málsatvik. Ef horft er á jákvæðu hliðarnar á þessari óvæntu uppákomu er ánægjulegt að allar viðbragðsáætlanir og brunavarnir hafi virkað sem skyldi. ”

 

Deila: