88 þúsund tonn á land í nóvember

Deila:

Landaður afli í nóvember var tæplega 88 þúsund tonn sem er 24% meiri afli en í nóvember 2022. Uppsjávarafli var rúmlega 48 þúsund tonn og jókst um 66% á meðan botnfiskafli var um 38 þúsund tonn og dróst saman um 5%. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Aflamagn á 12 mánaða tímabilinu frá desember 2022 til nóvember 2023 var 1.380 þúsund tonn sem er 8% minni afli en á 12 mánaða tímabili ári áður.

 

Deila: