Nýr Ægir er kominn út

Deila:

Nýtt tölublað Ægis er komið út. Blaðinu verður dreift til áskrifenda í vikunni. Í blaðinu kennir ýmissa grasa. Þar er meðal annars viðtal við Agnesi Guðmundsdóttur, markaðsstjóra og Taro Miyuzaki, sölustjóra uppsjávarafurða á skrifstofu Icelandic í Tókýó. Viðtal er einnig í blaðinu við Magnús Ríkarðsson, skipstjóra á Breka VE, Andrés Pétursson, skipstjóra og metaflabátnum Hafrafelli SU.

Rætt er við Elvar Þór Antonsson, módelsmið á Dalvík og Olgu Naumenkova, sem settist að á Dalvíkvík fyrir 18 árum. Hún segir hvergi betra að búa en á Íslandi.

Margt fleira er að finna á síðum blaðsins.

Deila: