Túrinn hófst í slæmu veðri

Deila:

Ísfisktogarinn Gullver NS kom til heimahafnar á Seyðisfirði í gærmorgun úr síðasta túr ársins, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar. Aflinn var 52 tonn, nær einungis þorskur og ýsa.

Rætt er við Þórhall Jónsson skipstjóra í fréttinni. Hann ber að túrinn hafi hafist í slæmu veðri á föstudag en að veðrið hafi svo gengið niður á laugardag. „Við vorum að veiðum frá Tangaflaki og suður í Litladýpi. Það var engin hörkuveiði í þessari veiðiferð. Þetta var bara nudd allan tímann. Nú er komið jólafrí hjá okkur og það eru auðvitað allir ánægðir að fá nokkra góða daga til að slappa af og njóta samvista við sitt fólk. Það er ekki gert ráð fyrir að haldið verði til veiða á ný fyrr en 2. janúar,“ segir Þórhallur.

Ómar Bogason, rekstrarstjóri frystihúss Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði, upplýsir í fréttinni að gert sé ráð fyrir að vinnslu í húsinu ljúki á morgun eða á föstudag. Að vinnslu lokinni verður allt þrifið og gert fínt fyrir hátíðina.

Deila: