Góðar fréttir af norsk-íslenskri síld

Deila:

Útlit er fyrir að þrír sterkir árgangar af norsk-íslenska síldarstofninum séu að alast upp í Barentshafi um þessar mundir. Þetta eru niðurstöður árlegs vistkerfisleiðangurs í Barentshafi sem er samvinnuverkefni Norðmanna og Rússa, og greint er frá m.a. á vef norsku Hafrannsóknastofnunarinnar, sjá nánar hér. Leiðangurinn var farinn á tímabilinu 10. ágúst til 7. október 2023 með þátttöku fjögra rannsóknaskipa.

Þetta kemur fram á vef Hafró. Þar segir að mælingin á 2023 árgangingum hafi reynst vera sú lang hæsta í tímaröðinni sem nær aftur til árins 1980. 2021 og 2022 reyndust einnig stórir.

„Það eru því sterkar vísbendingar um að stórir árgangar af norsk-íslenskri síld séu að vaxa upp í Barentshafinu sem munu ganga inn í veiðistofninn á næstu árum. Að öllu jöfnu er síldin að ganga úr Barentshafi og inn í veiðistofninn við fjögra ára aldur en einnig við fimm ára aldur þegar árgangar eru stórir og vaxtarhraðinn minni. Gangi þessar horfur eftir gæti veiðistofninn því farið að vaxa frá og með árinu 2026.

Niðurstöður síldarmælinganna eru sérstaklega áhugaverðar og kærkomnar því síldarstofninn hefur verið á niðurleið undanfarin ár vegna slakrar nýliðunar. Veiðar umfram ráðgjöf hafa hraðað þeirri þróun. Ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins um afla á norsk-íslenskri síld fyrir árið 2024 var upp á 390 010 tonn og aflamark íslenskra skipa er 61 395 tonn af samkvæmt vef Fiskistofu.”

Deila: