Umsóknir um leyfi til túnfiskveiða

Deila:

Fiskistofa auglýsir á vef sínum eftir umsóknum til veiða á túnfiski, nánar tiltekið bláuggatúnfiski. Leyfið veitir heimild til að stunda línuveiðar á tímabilinu 1. ágúst til 31. desember á veiðisvæði norðan 42°00,00´N milli 10°00,00´V og 45°00,00´V.

Fram kemur á vef stofnunarinnar að gefni verði að hámarki út þrjú leyfi og á árinu 2024 sé íslenskum leyfishöfum heimilt að veiða 212 tonn af bláuggatúnfiski.

Skilyrði

  • Almennt leyfi til veiða í atvinnuskyni.

  • Skip skuli vera að lágmarki 500 brúttótonn að stærð.

  • Hafa fullnægjandi útbúnað til veiðanna og meðhöndlunar bláuggatúnfiskafla.

Deila: