Greiddu 6.303 milljónir í skatta og gjöld

Deila:

Í nýútkominni samfélagsskýrslu Síldarvinnslunnar fyrir árið 2023 má finna samantekt um samfélagsspor Síldarvinnslusamstæðunnar sem gefur heildstæða mynd af öllum opinberum gjöldum og sköttum sem greiddir eru til hins opinbera vegna starfsemi félagsins. Síldarvinnslan greiddi 6.303 milljónir kr. í skatta og gjöld árið 2023. Félagið innheimti 4.316 milljónir kr. á árinu af starfsfólki og hluthöfum fyrir ríkissjóð. Samtals nam því samfélagsspor starfseminnar 10.619 milljónir kr. og jókst um 1.018 milljónir kr. frá árinu á undan.

Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar. Þar er bent á að heildarsatarfsmannafjöldi Síldarvinnslusamstæðunnar hafi á síðasta árið verið 739.

Nánari umfjöllun um samfélagsspor, stjórnarhætti, umhverfisþætti og ýmsa ófjárhagslega þætti má finna í samfélagsskýrslu Síldarvinnslunnar fyrir árið 2023 sem nálgast má hér (https://svn.is/wp-content/uploads/2024/03/SVN_Samfelagsskyrsla_23.pdf)

Deila: