Ráðherra kynnir frumvarp um lagareldi

Deila:

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra mun kynna frumvarp til laga um lagareldi á opnum fundi sem haldinn verður í sal Club Vox á 1. hæð Hilton Reykjavík Nordica, miðvikudaginn 8. maí, kl. 11.00. Fumvarpið er sem stendur meðferðar hjá atvinnuveganefnd að loknu samráðsferli í samráðsgátt.

Þetta kemur fram á vef Stjóranrráðsins en frumvarpið hefur verið afar umdeilt. Bent hefur verið á að með því sé verið að færa fiskeldisfyrirtækjum firði landsins án endurgjalds um ókomna tíð.

Á vefnum segir að eftir kynninguna muni Kolbeinn Árnason skrifstofustjóri matvæla fara nánar yfir þær breytingar sem hafa orðið á frumvarpinu að loknu samráðsferli. Tilgangur frumvarpsins er að skapa greininni ramma sem tryggir að sjálfbærni og vernd lífríkisins verði höfð að leiðarljósi og hefur víðtækt samráð verið haft hagaðila til að ná settu marki.

Fulltrúar frá Hafrannsóknastofnun og Matvælastofnun munu einnig segja frá aðkomu sinna stofnana að frumvarpinu og hverju lögin myndu breyta fyrir þeirra starfsemi.

Streymt verður frá fundinum, frumvarpið má nálgast hér.

Deila: