Gullver landaði 111 tonnum af ýsu og þorski

Deila:

Gullver NS kom til heimahafnar á Seyðisfirði að lokinni veiðiferð í gærmorgun, að því er kemur fram á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Aflinn var 111 tonn, mest þorskur og ýsa.

Að sögn Hjálmars Ólafs Bjarnasonar skipstjóra var víða veitt. “Við byrjuðum á Flugbrautinni fyrir vestan og fengum þar góðan afla. Ljóst var að við myndum landa í heimahöfn á Seyðisfirði og var þá haldið austur og veitt víða á leiðinni. Veitt var á Tánni, Síðugrunni, Öræfagrunni, Mýragrunni, Stokksnesgrunni og endað á Lúlla og Lovísu. Það var fínasta veður allan túrinn,” er haft eftir Hjálmari Ólafi.

Fram kemur að snemma í gærmorgun hafi áhöfnin á Gullver efnt til björgunaræfingar á Seyðisfirði. „Æfð var sjósetning og notkun léttabáts og notkun bæði Björgvinsbeltis og Markúsarnets. Gekk æfingin vel í alla staði.”

Gullver mun halda á ný til veiða á fimmtudag.

Deila: