616 með leyfi til strandveiða

Deila:

Strandveiðileyfum fjölgar ört. Að morgni annars veiðidags voru þau orðin 616.  Í fyrra voru 516 bátar skráðir til leiks á fyrsta degi. Að þessu sinni voru þeir 552.

Fjölda báta er mjög misskipt á milli svæða. Skráðir bátar eru nú 319 á svæði A, 98 á svæði B, 61 á svæði C og 138 á svæði D.

330 tonn veiddust á fyrsta degi strandveiða, 2. maí. Að meðaltali veiddust 256 tonn á dag í fyrra.

 

 

Deila: