25 útskrifuðust úr Sjóvarútvegsskóla GRÓ

Deila:

Alls útskrifuðust 25 nemendur frá Sjávarútvegsskóla GRÓ í gær, 15. maí. Athöfnin fór fram í hátíðarsal Hafró, Fornubúðum 5 í Hafnarfirði. Að athöfn lokinni kynntu útskriftarnemendurnir verkefni sín á sérstakri sýningu.

Nemendurnir 25 komu frá 15 löndum í Mið-Ameríku, Afríku og Asíu — 11 konur og 14 karlar. Um er ræða 25. árganginn sem útskrifast úr skólanum.

Flestir útskrifast af fiskveiðistjórnunarlínu (10), en fimm af hverri hinna þriggja, stofnstærðarlínu, fiskeldislínu og gæðastjórnunarlínu. Frá upphafi hafa 488 nemendur lokið námi frá Sjávarútvegsskólanum frá yfir 60 samstarfslöndum.

Frá þessu er greint á vef Hafró. Hér má sjá heimasíðu nemenda 2023-2024.

Deila: