Kristján sér ekki fram á hvalveiðar í sumar

Deila:

Kristján Loftsson, eigandi Hvals hf., segist í samtali við Morgunblaðið ekki sjá fram á að geta veitt hval í sumar. Til þess sé tími til undirbúnings of knappur.

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra veitti leyfi til veiða á 128 langreyðum í gær, eftir að hafa legið undir feldi.

Haft er eftir Kristjáni að flest fólk skilji þetta en ekki ráðherrar Vinstri grænna. Ráða þurfi fólk til vinnu og gera margvíslegar ráðstafanir. Án fyrirsjáanleika sé þetta vonlaust.

Hann segir enn fremur að það blasi við honum að ráðherrar VG hafi reynt að gera hvalveiðimönnum erfitt fyrir.

Deila: