Strandveiðar gætu klárast 10 júlí

Áætlað er að fjórtán veiðidagar séu eftir á strandveiðum, að deginum í dag meðtöldum. Þetta tekur mið af framgangi veiðanna til þessu og má lesa á gagnasíðum Fiskistofu. Búið er að veiða 62,3% aflaheimilda í þorski á strandveiðum.
Að óbreyttu og með sama áframhaldi verður síðasti dagur strandveiða 10. júlí.