Opnað fyrir 4000 tonna makrílpott

Deila:

Fiskistofa hefur opnað fyrir umsóknir úr 4.000 tonna makrílpotti. Þetta kemur fram á vef stofnunarinnar. Opnað er í samræmi við reglugerð um ráðstöfun 4.000 lesta af viðbótarheimildum í makríl. Á fyrsta virka degi hverrar viku afgreiðir Fiskistofa þær umsóknir sem bárust vikuna á undan.

Aðeins skip í B flokki sem hafa fengið úthlutað 30 tonnum eða minna, eða hafa veitt 75% eða meira af úthlutun sinni geta fengið viðbótarúthlutun. Hámarksúthlutun skips hverju sinni er 50 tonn og gjald fyrir úthlutun er 1,79 krónur á hvert kíló. Athugið að heimildir sem keyptar eru úr pottinum eru óframseljanlegar.

Sjá nánar hér.

Deila: