Fyrirkomulag byggðakvóta úr sér gengið

Fyrirsögnin er yfirskrift tilkynningar á vef Ríkisendurskoðunar, þar sem reifaðar eru niðurstöður stjórnsýsluúttektar stofnunarinnar um fyrirkomulag byggðakvóta.
Í tilkynningunni segir meðal annars: „Gera þarf veigamiklar breytingar á úthlutunarkerfi almenns byggðakvóta eigi hann að vera starfræktur áfram. Um áratuga gamalt kerfi er að ræða sem hefur ekki þróast í takti við samfélagslegar breytingar og útilokað er að meta árangur af ráðstöfun hans við núverandi fyrirkomulag. Því er ekkert hægt að segja til um hvort framkvæmdin samræmist þeim markmiðum sem stefnt var að þegar lögin voru sett á sínum tíma. Sértæki byggðakvótinn eða aflamark Byggðastofnunar felur í sér markmið um að styðja minni byggðarlög í vanda og hefur tilheyrandi úthlutunarkerfi þróast í samræmi við þær reglur sem um það gilda.”
Ríkisendurskoðun beinir eftirfarandi fjórum ábendingum til matvælaráðuneytis:
- Matvælaráðuneyti þarf að sinna lagaskyldu sinni.
- Endurskoða þarf úthlutunarkerfi almenns byggðakvóta frá grunni og móta um það skýra stefnu.
- Endurskoða þarf kröfur og skilyrði um úthlutun almenns byggðakvóta, sem og sérreglur sveitarfélaga.
- Ljúka þarf gerð verklagsreglna ráðuneytis um um byggðakvóta.
Ríkisendurskoðun beinir enn fremur eftirfarandi ábendingu til Byggðastofnunar og Fiskistofu:
- Verklagsreglur um byggðakvóta þurfa að endurspegla framkvæmd úthlutunar og eftirlit með nánari hætti.
Skýrsluna má í heild sjá hér.