Fyrsti makríllinn úr íslenskum sjó

Beitir NK er sagður á leið til hafnar með 474 tonn af makríl sem veiddist í íslenskri lögsögu austur af landinu. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar. Þar mun makrílvinnsla hefjast í dag. Rætt er við Karl Rúnar Róbertsson gæðastjóra í fiskiðjuveri fyrirtækisins. Þar er allt til reiðu. „Hér er allt yfirfarið, tandurhreint og fínt og mannskapurinn er klár í slaginn. Samkvæmt fréttum frá Beiti þá er um að ræða stóran makríl, yfir 500 grömm og átan í honum er um 3 þannig að þetta lítur vel út,” segir Karl Rúnar.
Fram kemur að Vilhelm Þorsteinsson EA sé á leið úr Smugunni í fyrramálið með 851 tonn af makríl.
Fram kemur að Síldarvinnsluskipin Beitir NK, Börkur NK og Barði NK muni hafa með sér veiðisamstarf við makrílveiðarnar ásamt Samherjaskipunum Vilhelm Þorsteinssyni EA og Margréti EA. Beitir, Börkur og Vilhelm hafa verið að veiðum síðustu daga en Barði og Margrét héldu til veiða í gær.