Hlutu skilorðsbundna dóma

Skipstjóri og stýrimaður fraktskipsins Longdawn voru sakfelldir í Héraðsdómi Reykjaness í liðinni viku fyrir að skilja skipstjóra strandveiðibátsins Höddu HF eftir í sjávarháska, eftir að hafa siglt skipinu á bátinn. Skipstjórinn, Eduard Dektyarev hlaut tólf mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára. Annar stýrimaður, Alexander Vasilyev, hlaut átta mánaða dóm, einnig skilorðsbundinn til tveggja ára. Eduard var auk þess sviptur skipstjórnarleyfi í þrjá mánðuði.
Ákæruvaldið hafði farið fram á tólf og níu mánuði.
Þá var Eduard gert að greiða tæplega 1,3 milljónir í sakarkostnað og Alexander þarf að greiða rúmlega 1,2 milljónir.