Hampiðjan kaupir FiiZK Protection AS

Deila:

Hampiðjan hf. hefur skrifað undir kaupsamning á öllu hlutafé norska fyrirtækisins FiiZK Protection AS, sem er leiðandi í framleiðslu og sölu á laxalúsapilsum fyrir fiskeldisgeirann og er með um 80% markaðshlutdeild laxalúsapilsa í Noregi. Frá þessu greinir í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Lúsapils mun vera varnarveggur úr dúk sem er lagður utan um um fiskeldiskví til að varna því að laxalúsalirfur berist inn í fiskeldiskvíina og setjist á laxinn. „Þessi varnarveggur er yfirleitt sérsniðinn að hverri kví fyrir sig og nær gjarnan 10-15 metra niður fyrir yfirborð sjávar og það vel niður fyrir yfirborðið að það nær niður fyrir lífssvæði lúsarinnar sem er í efstu metrum sjávarins. Lífsferill laxalúsarinnar er þannig að lúsin gýtur eggjum sem klekjast út í yfirborði sjávar og lirfurnar berast síðan um fyrir straumum og festa sig á laxinn ef færi gefst. Fyrir utan að varna því að lús berist inn í fiskeldiskvína þá er varnarveggurinn áhrifarík vörn gegn marglyttu sem getur borist inn í fiskeldiskvíar og valdið miklum skaða á laxinum,” segir í tilkynningunni.

Þar kemur fram að félagið sé með meginstarfsstöð sína í Valsneset fyrir utan Þrándheim í Noregi.

Hluti af starfsemi FiiZK Protection, sem staðsett er í Mjåtveit í nágrenni við Bergen er ekki hluti af þessum kaupum. Sú starfsemi tengist framleiðslu á dúkum fyrir lokaðar og hálflokaðar fiskeldiskvíar sem framleiddar eru af öðru félagi innan FiiZK samstæðunnar, FiiZK Industries AS. Tilfærsla á þessum hluta starfseminnar verður lokið áður en kaupin ganga að fullu leyti í gegn. Áætlað er að kaupin gangi að fullu í gegn í byrjun september.

Í tilkynningunni er haft eftir Hirti Erlendssyni forstjóra Hampiðjunnar að mikill fengur sé að fá FiiZK Protection inn í samstæðu Hampiðjunnar. Um sé að ræða mikilvægt skref í áframhaldandi þjónustu fyrirtækisins við fiskeldisgeirann. Félag sé þegar með öfluga starfsemi tengda fiskeldi víða um heim.

„Við getum nú boðið upp á enn breiðara vöruúrval og þjónustu við fiskeldisfyrirtæki og mun það styrkja stöðu Hampiðjunnar á þessum mikilvæga markaði enn frekar.

Við viljum þakka aðaleigendum FiiZK samstæðunnar, norsku fyrirtækjunum BEWI Invest og Nekkar fyrir góð og vönduð samskipti og uppbyggilegt söluferli þar sem gott tillit var tekið til hagsmuna beggja aðila.

Starfsmenn FiiZK Protection, sem hafa undanfarin ár byggt upp öfluga og vandaða framleiðslu á lúsapilsum í Valsneset, bjóðum við velkomna til Hampiðjunnar og hlökkum til að vinna áfram með þeim við að efla enn frekar starfsemina þar og í Þrándheimi á næstu árum.”

Deila: