Reyna að halda lífi í skíðishval í Þorlákshöfn

Deila:

Skíðishval hefur rekið á land við smábátahöfnina í Þorlákshöfn. RÚV greinir frá því að skíðishvalurinn sé enn á lífi, þegar þetta er skrifað, en berjist fyrir lífi sínu. Björgunarsveitir munu freista þess að draga dýrið aftur út í sjó, í samráði við MAST.

Af myndum af vettvangi má dæma að fólk hafi borið rök klæði á dýrið og helli yfir það sjó úr fötum.

Uppfært: Á reiki hefur verið hvaða tegund hvals þarna var á ferðinni. Ljóst er alltént að um skepnan tilheyrir tegund skíðishvals. Hvað sem því líður liggur nú fyrir að björgunarsveitum tókst að draga dýrið á flot á flóðinu og synti það burt. 

Deila: