Minnsta magn makríls frá 2010

Deila:

Bráðabirgðaniðurstöður mælinga á útbreiðslu og þéttleika makríls í íslenskri landhelgi sýnir að útbreiðsla tegundarinnar er sú minnsta sem mælst hefur frá því rannsóknarleiðangur var fyrst farinn árið 2010. Makríll mældist á 5 af 43 yfirborðstogstöðvum. Allar nema ein voru staðsettar suðaustan við landið. Á þremur af þessum fimm stövum veiddust aðeins fáeinir fiskar en aflinn var í heild 1,7 tonn og 10,3 tonn á hinum stöðvunum tveimur.

Þetta kemur fram á vef Hafró. Um var að ræða árlegan uppsjávarvistkerfisleiðangur í Norðurhöfum að sumarlagi. Leiðangurinn var 33 dagar en það var rannsóknaskipið Árni Friðriksson sem tók þátt fyrir hönd Íslands. Árni sigldi sex þúsund sjómílur og gerði sjómælingar og tók átuháfar á öllum yfriborðstogstöðvum.

Í leiðangrinum var einnig könnuð útbreiðsla síldar, kolmuna og hvala.

Líkt og undanfarin ár var norsk-íslenska vorgotssíld að finna á mörgum togstöðvum fyrir norðan og austan landið. Minna fékkst af íslenskri sumargotssíld á landgrunninu fyrir sunnan og vestan landið þar sem einungis fáeinir fiskar fengust á þremur stöðvum. Leiðarlínur þessa leiðangurs eru of gisnar til að gefa einhverjar upplýsingar um stærð þess stofns.

Kolmunni mældist við landgrunnsbrúnina sunnan og vestan við landið í álíka þéttleika og síðustu sumur.

Bráðabirgðaniðurstöður sýna að hitastig í yfirborðslagi sjávar var álíka og sumarið 2023 fyrir sunnan og vestan landið en kaldara fyrir norðaustan og austan landið.

Líkt og undanfarin ár tóku skip frá Noregi, Færeyjum og Danmörku þátt í leiðangrinum. Gögn frá skipunum fimm verða tekin saman og greind upp úr miðjum ágúst og niðurstöður kynntar undir lok ágúst.

Deila: