Matvælastofnun kærir ákvörðun lögreglustjórans

Deila:

„Matvælastofnun hefur kært ákvörðun Lögreglustjórans á Vestfjörðum um niðurfellingu máls þegar 3.500 laxar sluppu úr kví á eldissvæði Arctic Sea Farm við Kvígindisdal í Patreksfirði í ágúst 2023. Að mati Matvælastofnunar var innra eftirliti ábótavant og ekki var farið að verklagsreglum sem félagið hafði sett sér við slátrun sem leiddi til umfangsmikils stroks á eldisfiski.”

Þetta kemur fram á vef stofnunarinnar. Þar segir enn fremur að með hliðsjón af þeim brotalömum sem fyrir hendi hafi verið við starfsemina vegna ófullnægjandi verklags, sem með réttu hefði átt að koma í veg fyrir atvikið, sé það mat Matvælastofnunar að nauðsynlegt sé að rannsaka nánar tildrög og orsakir stroksins, sem og að fá afstöðu ríkissaksóknara um afgreiðslu málsins.

Deila: