Ráðherra á Egilsstöðum og Höfn

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra mun heimsækja Egilsstaði og Höfn á Hornafirði dagana 25. og 26. september. Fyrr í mánuðinum heimsótti ráðherra Patreksfjörð, Raufarhöfn og Þórshöfn og voru heimsóknirnar gerðar með það markmiði að íbúar byggðarlagana gætu átt milliliðalausar samræður við ráðherra um þau málefni sem undir hana heyra.
Bjarkey greindi frá því í dag að hún hygðist ekki sækjast eftir formannsembættinu í VG.
Á vef Stjórnarráðsins segir að þessar heimsóknir hennar á landsbyggðina hafi verið gagnlegar. „Það er dýrmætt að geta sest niður með íbúum hinna dreifðari byggða og átt við þau samtal í augnhæð um þau mál sem á þeim brenna“
Íbúum gefst kostur á að bóka fund með ráðherra með því að senda póst á palina.axelsdottir.njardvik@mar.is.
Dagsetningar og staðsetning heimsókna
- Miðvikudaginn 25. september – Höfn í Hornafirði – Nýheimum
- Fimmtudaginn 26. september – Egilsstöðum – Sláturhúsinu menningarmiðstöð