Hraðsyndir hvalir merktir með nýjum merkjum

Deila:

Undanfarnar vikur hefur Hafrannsóknastofnun gert tilraunir til að merkja hrefnur inni á Eyjafirði með gervitunglamerkjum sem henta til merkinga á hraðsyndari hvalategundum á borð við hrefnum, langreyðum og grindhvölum. Um er að ræða afrakstur þróunarverkefnis innan vébanda Norður Atlantshafs Sjávarspendýraráðsins, NAMMCO North Atlantic Marine Mammal Commission). Verkefnið heitir MinTag og hefur stofnunin hefur verið þátttakandi í því frá upphafi árið 2021. Frá þessu er sagt á vef Hafró.

Vísindamönnum hefur að sögn gengið erfiðlega að merkja þessar tegundir hingað til. Verkefnið sé því afar mikilvægt til að bæta aðferðir við öflun þekkingar um ferðir og atferli þessara tegunda. Merkin eru hönnuð í samstafi við verkfræðifyrirtækið Wildlife Computers í Bandaríkjunum sem hefur verið leiðandi á sviði hönnunar á merkjum til notkunar við rannsóknir á villtum dýrum. Þátttakendur verkefnis eru auk Íslands, Noregur, Grænland, Færeyjar og Japan, en sérfræðingar hjá Hafrannsóknastofnun sjá um merkingarnar hérlendis.

Lesa má nánar um verkefnið og þróunarvinnuna á vefsíðu NAMMCO, hér á og jafnframt má fylgjast með öllum merktum hvölum með hinum nýju merkjum á sérstakri síðu um verkefnið, hér.

Fram kemur að tekist hafi að merkja dýr inni á Eyjafirði, skammt sunnan Hjalteyrar þann 14. september síðastliðinn. Á meðfylgjandi korti má sjá feril merktu hrefnunnar fyrstu sólarhringana. Eftir að dýrið kom norður úr Eyjafirði setti það stefnu austur og var tveimur dögum eftir merkingu komið austast í Axarfjörð. Þar sem hún hefur haldið sig að mestu síðan.

Deila: