Hampiðjan og Morenot Ísland sameinast

Morenot Ísland, dótturfélag Hampiðjunnar, hefur nú verið sameinað Hampiðjan Ísland. Frá þessu greinir í tilkynningu frá Hampiðjunni. Þar segir að með þessu aukist enn vöruúrval og framboð þjónustu þegar kemur að útgerðarvörum.
Fram kemur að Morenot Ísland ehf. hafi upprunalega verið stofnað 1978 undir heitinu Sjóvélar ehf. og fyrirtækið eigi sér því langa sögu í íslenskum sjávarútvegi. Í byrjun árs 2017, eftir að Mørenot Fishery í Noregi eignaðist meirihluta í fyrirtækinu, var nafninu breytt í Morenot Ísland ehf. Hampiðjan eignaðist Mørenot samstæðuna í Noregi á síðasta ári og þá varð Morenot Ísland dótturfyrirtæki Hampiðjunnar.
Í tilkynningunni segir enn fremur:
Markmið Morenot Ísland hefur verið að vera leiðandi í þjónustu og sölu á vörum fyrir línuflotann með Dyrkorn fiskilínunni og Catch krókunum og hefur það byggt upp sterka stöðu á íslenskum markaði. Öll vörumerki fyrirtækisins eru rótgróin hér á landi auk þess sem fyrirtækið þróar og framleiðir útbúnað til línuveiða, línubeitningavélar, línubursta og rafdrifin línuspil sem hafa reynst afar vel.
Hampiðjan Ísland er þekkt fyrir breitt vöruúrval í veiðarfærum og rekstrarvörum til útgerðar og nú mun það aukast enn frekar með þeim vörum sem Morenot Island hefur boðið. Þessi sameining ásamt sameiningu rekstrarvörudeildar Voot í síðasta mánuði við Hampiðjan Ísland gerir Hampiðjan Ísland að enn öflugri birgja fyrir íslensk útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki og fyrirtækið sinnir nú þörfum þeirra allra, allt frá þeim smæstu til þeirra stærstu.
Verslanir Hampiðjunnar í Reykjavík, Ísafirði, Neskaupstað og Vestmannaeyjum munu áfram vera mikilvægir miðpunktar fyrir þjónustu og dreifingu vara og verslanirnar á Akureyri og í Ólafsvík munu áfram þjóna sínum svæðum, með áherslu á sérhæfðar vörur fyrir sín bæjarfélög.
Rekstur og vöruhús sameinað fyrirtækis verður staðsett í höfuðstöðvum Hampiðjunnar á Skarfabakka í Sundahöfn og tilfærslan mun ekki fela í sér miklar breytingar fyrir viðskiptavini og birgja.