Framleiðsla jólasíldar er hafin

Framleiðsla jólasíldar Síldarvinnslunnar er hafin, að því er fram kemur á vef fyrirtækisins. Þar segir að Börkur NK hafi komið með gæðasíld til vinnslu og ákveðið hafi verið að verka síld úr þeim farmi til frameiðslu á jólasíldinni. Síldin var að sögn flökuð og skorin í bita og síðan sett í kör með saltpækli. Eftir ákveðinn tíma hafi hún svo farið í kör með edikspækli.
„Nú er síldin komin í tunnur með edikspækli og í þeim marinerast hún í einar þrjár vikur . Eftir það verður hún tilbúin að fara í fötur með tilheyrandi kryddjurtum og sykri. Þetta er gróf lýsing á framleiðsluferlinu en nákvæmari lýsing fæst ekki. Margt sem tengist jólasíldinni er nefnilega framleiðsluleyndarmál en framleiðslan byggir á áratuga gamalli uppskrift sem er mótuð af Haraldi Jörgensen og Jóni Gunnari Sigurjónssyni,” segir í fréttinni.
Fram kemur að jólasíldarinnar sé beðið með mikilli eftirvæntingu, þegar framleiðslan sé hafin.
„Það kom mér á óvart þegar ég byrjaði að vinna hér hve spenningurinn var mikill. Mér fannst dálítið skrítið hvað fólk sýndi jólasíldinni mikinn áhuga enda er ég sveitastrákur ofan úr Fellahreppi. Mér finnst gaman að upplifa þessa spennu, hún er einstök. Þegar jólasíld er framleidd eru gerðar miklar kröfur til hráefnisins. Til framleiðslunnar viljum við fá stóra og fallega norsk – íslenska síld sem veidd er hér rétt fyrir utan þannig að hún er eins fersk og mögulegt er. Það er líka gaman að heyra álit fólks á síldinni okkar. Það er einfaldlega sagt að hún sé besta síld sem völ er á. Það er alltaf fjör hjá okkur þegar síldin er sett í föturnar með tilheyrandi jurtum og hér hlakkar fólk til að taka þátt í því,” er haft eftir Oddi Einarssyni yfirverkstjóra.
Jólasíld Síldarvinnslunnar er framleidd fyrir starfsfólk Síldarvinnslunnar og þá sem tengjast fyrirtækinu. Hosurnar, líknarfélag starfsmanna Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað, fær þó síld í ákveðnu magni sem er seld til styrktar sjúkrahúsinu, að því er fram kemur á vefnum.
Ljósmynd: Geir Sigurpáll Hlöðversson