First Water búið að slátra 1000 tonnum

Landeldisfyrirtækið First Water í Þorlákshöfn hefur náð þeim áfanga á árinu að slátra þúsund tonnum af laxi. Í fyrra var slátrað 365 tonnum. Frá þessu greinir Viðskiptablaðið. Þar er haft eftir Eggerti Þór Kristóferssyni, forstjóra First Water að fyrirtækið sé stolt af þessum áfanga. Hann gefi starfsfólkinu jákvæða sýn á þau markmið sem sett hafa verið. „Þetta markmið er í höfn og við erum bara rétt að byrja en stefnan er sett á að í árslok hafi 1.500 tonnum af laxi verið slátrað hjá okkur árið 2024,“ segir Eggert Þór Kristófersson forstjóri First Water.
Í fréttinni kemur fram að til standi að reisa nýja og tæknivædda seiðastöð í Þorlákshöfn. Seiðaeldisstöðin að Öxnalæk í Ölfusi sjái fyrirtækinu fyrir öllum laxaseiðum í dag. Haft er eftir Eggerti að teymi sérfræðinga hafi verið sett saman til að annast uppbyggingu og rekstur seiðaeldisstöðvanna.