Fullfermi og aftur fullfermi

Deila:

Vestmannaeyjaskipin Bergur VE og Vestmannaey VE hafa fiskað fyrir austan land undanfarnar vikur og oftast landað aflanum í Neskaupstað. Í síðustu viku lönduðu skipin þó í Eyjum, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar. Þar segir að í gær hafi skipin komið til Neskaupstaðar og landað þar fullfermi. Skipin fylgdust að sögn að í veiðiferðinni en aflinn var nær alfarið þorskur og ýsa.

Haft er eftir skipstjórum skipanna að þeir veiði iðulega fyrir austan á þessum árstíma enda sé lítið að hafa sunnan við land.

„Í síðasta túr reyndu skipin fyrir sér á Broadway fyrir vestan Eyjar en þar var afar tregt. Einungis fékkst ýsa og hún var blönduð og ekki góð. Því var strikið tekið austur fyrir land beint á Glettinganesflak. Þar var góð veiði og þar fékkst góður fiskur. Skipstjórarnir segja að þarna sé fiskurinn í síldinni og mikið líf. Undir lok túrsins var haldið á Tangaflakið og þar var hann kláraður.”

Deila: