Fiskistofa fær viðurkenningu

Deila:

Fiskistofa er á meðal þeirra 130 opinberu aðila og fyrirtækja sem hlutu viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar árið 2024.

Viðurkenninguna hljóta þátttakendur sem hafa að amk 40/60 hlutfall kynja í stjórnunarstöðum að því er fram kemur í frétt á vef Fiskistofu.

Þar segir að í yfirstjórn Fisksitofu sitji tvær konur og þrír karlmenn. Kynjahlutfall millistjórnenda hjá Fiskistofu sé nokkuð jafnt, eða 45% konur og 55% karlmenn.

Viðurkenninguna veitir Félag kvenna í atvinnulífinu (FKA).

Jafnvægisvogin heldur úti mælaborði þar sem finna má tölfræðilegar upplýsingar um jafnrétti kynja í stofnunum og fyrirækjum.

Deila: