90 skemmtiferðaskip komu til Reykjavíkur

Deila:

Skemmtiferðaskipavertíð Faxaflóahafna 2024 hófst þann 21. mars með komu skipsins Ambition, sem lagðist að Skarfabakka. Vertíðinni lauk þann 12. október þegar hið umhverfisvæna leiðangursskip Le Commandant Charcot sigldi úr höfn. Í heildina komu 90 skemmtiferðaskip til Reykjavíkur í alls 259 skipakomu. Frá þessu segir á vef Faxaflóahafna. Þar segir að farþegar í þessum skipum hafi verið tæplega 322 þúsund, þar af 156 þúsund skiptifarþegar.+

„Skiptifarþegar eru þeir farþegar sem hefja eða enda ferð sína í höfn og fljúga síðan til eða frá landinu í gegnum Keflavíkurflugvöll. Til samanburðar þá voru 148.615 skiptifarþegar sem fóru um hafnir Faxaflóahafna í fyrra, sem þýðir að það hefur orðið aukning um 5% í fjölda skiptifarþega. Heildarhlutfall skiptifarþega af öllum farþegum skemmtiferðaskipa er svipað og á árinu 2023 eða rétt tæplega 50%.“

Fækkun spáð fyrir 2025

Samkvæmt bókunarstöðu skemmtiferðaskipa fyrir árið 2025 er gert ráð fyrir 238 skipakomum og um 300 þúsund farþega. Það er helst fækkun í komum leiðangursskipa sem fara úr 127 komum í 107 komur sem skýra að einhverju leiti þessa fækkun. Heildarfjöldi farþega er áætlaður 300.225 fyrir árið 2025 og þar af verði 160.633 skiptifarþegar eða um 53,5% af öllum farþegum.

Deila: