Brenn fyrir starfsemi stofnunarinnar

Deila:

„Mér þykir mjög vænt um þessa stofnun og er afar þakklát fyrir það tækifæri að fá að stýra henni. Ég geri mér grein fyrir að starfinu fylgir mikil ábyrgð og henni tek ég af auðmýkt. Það má orða það svo að ég brenni fyrir stofnunina og er staðráðin í að gera vel. Ég vona svo sannarlega að þegar ég horfi til baka að nokkrum árum liðnum megi sjá framþróun í starfseminni og að við höfum og gert hlutina rétt,“ segir Elín Björg Ragnarsdóttir sem tók við starfi fiskistofustjóra 1. júní síðastliðinn. Hún hefur starfað hjá Fiskistofu frá árinu 2016.

Elín Björg er fædd og uppalin á Húsavík og komst snemma á lífsleiðinni í kynni við sjávarútveg. Var farin að vinna í rækjuvinnslu og frystihúsi í kringum fermingu. „Mér lá mikið á að takast á við fullorðinslífið og hætti námi eftir grunnskóla, fór að vinna í frystihúsi, eignaðist barn 17 ára, gifti mig 18 ára og skildi 19 ára – það gerðist allt mjög hratt. Það blasir einhvern vegin annars konar veruleiki við einstæðri ungri móður en ég hafði verið í áður sem varð til þess að ég fór að hugsa um hvernig ég best gæti tryggt afkomu okkar til framtíðar,“ segir hún. Hún stefndi að því að verða verkstjóri á frystihúsinu á Húsavík og ákvað að mennta sig til starfans. Fyrst við sjávarútvegsdeild sem starfrækt var á Dalvík og síðar í fiskvinnsluskólanum í Hafnarfirði, en Elín lauk námi í fiskiðn og fisktækni frá Tækniskólanum. Hún tók einnig ýmis konar námskeið á sviði stjórnunar og reksturs, verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun og eins árs nám í sjávarútvegsfræði við endurmenntun HÍ.

Elín starfaði um skeið sem framleiðslustjóri hjá Kjötumboðinu Goða, en það fyrirtæki var selt norður til Akureyrar og bauðst henni að flytja með en gerði það ekki. „Það blundaði alltaf í mér að flytja aftur norður, en á þessum tíma var það ekki inni í myndinni því ég gifti mig aftur og eignaðist annan son, þannig að við vorum áfram syðra,“ segir hún. Elín var um tveggja ára skeið framkvæmdastjóri Samtaka fiskframleiðenda og útflytjenda og kunni því vel.

Vildi auka við þekkingu á viðskiptum og lögfræði

„Svo koma að því að ég varð einstæð móðir á ný og þá þurfti ég aftur að endurmeta lífið, ég hefði verið í mikilli vinnu og oft var erfitt að samræma starfið og fjölskyldulífið. En á þessum tímapunkti fór ég að velta fyrir mér hvernig best væri að búa í haginn fyrir fjölskylduna og tryggja okkur góða framtíð, ég þyrfti að gera breytingar og raða upp á nýtt. Eftir að hafa farið yfir stöðuna sá ég, miðað við þau störf sem ég hafði sinnt, að mig vantaði meiri þekkingu á viðskiptum og lögfræði.“ Úr varð að Elín fór í nám við Háskólann á Bifröst og lauk þar fyrst námi í viðskiptalögfræði og síðar meistaragráðu í lögfræði. „Þetta var mjög skemmtilegt nám og gaman að takast á við það,“ segir hún en um skeið eftir að námi lauk starfaði hún sjálfstætt við lögfræði-, rekstarog gæðastjórnunarráðgjöf.

Kærkomið tækifæri til að flytja norður

Elín hóf störf á Fiskistofu um áramótin 2015 til 2016, á sama tíma og stofnunin flutti höfuðstöðvar sína til Akureyrar. „Ég sá auglýsta stöðu verkefnastjóra gæðaog þróunarmála og fannst það mjög spennandi, sótti um og fékk starfið,“ segir hún. „Það var kærkomið tækifæri fyrir mig að flytja norður, þó ekki væri það í heimabæinn Húsavík.“ Hún starfaði um 6 mánaða skeið sem sviðsstjóri friðlýsinga og starfsleyfa hjá Umhverfisstofnun á árinu 2020 en tók við starfi sviðsstjóra veiðieftirlits hjá Fiskistofu og var starfandi staðgengill fiskistofustjóra. „Það var gott að fá innsýn inn í störf hjá annarri ríkisstofnun, en einhvern veginn togar sjávarútvegurinn alltaf í mig og ég uni mér best í starfi sem tengist þeirri grein,“ segir hún og lætur vel af störfum sínum hjá Fiskistofu. „Það er góður andi hjá stofnuninni, frábært og metnaðarfullt starfsfólk og það er alltaf líflegt í vinnunni, eitthvað nýtt og skemmtilegt á hverjum degi og þó ég hafi starfað hjá Fiskistofu í 9 ár þá læri ég alltaf eitthvað nýtt. Það er ævinlega mikil þróun í gangi og kannski aldrei meiri en núna. Það sem mér líkar einnig svo vel við starfið er að það má segja að okkar starf sé, líkt og í sjávarútveginum, vertíðarbundið. Það er grásleppuvertíð, strandveiðar, síldarvertíð og svo framvegis. Hjá okkur skiptir allt um takt í tengslum við það sem er að gerast á hverjum árstíma og það er mjög gaman.“

Opna starfsstöð í Neskaupstað

Á bilinu 55 til 60 starfsmenn starfa hjá Fiskistofu og eru starfsstöðvarnar 6 talsins. Höfuðstöðvar á Akureyri og stór starfsstöð er í Hafnarfirði. Þá eru minni stöðvar á Ísafirði, Stykkishólmi og í Vestmannaeyjum. Starfsstöð á Hornafirði verður lokað um næstu áramót og ný opnuð í Neskaupsstað, en einn starfsmaður á Höfn heldur áfram störfum fyrir stofnunina.

Nánar er rætt við Elínu í nýju tölublaði Sóknarfæris.

Deila: