Karfaveiðar áfram bannaðar á Reykjaneshrygg

Deila:

Verndunar- og stjórnunarráðstafanir fyrir norsk-íslenska síld, makríl, búrfisk (búra) og ýsu á Rockall-banka voru samþykktar á ársfundi Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðiráðsins (NEAFC), sem haldinn var í London dagana 12.-15. nóvember. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

„Samþykktirnar gilda fyrir árið 2025 og eru gerðar á á grundvelli nýjustu ráðgjafar Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES). Stjórnunarráðstafanir fyrir háf voru einnig framlengdar auk banns við veiðum á hámeri. Þá samþykktu öll aðildarríki tillögu um stjórn karfaveiða í Síldarsmugunni eftir ósamkomulag til margra ára.

Ekki liggur fyrir samkomulag varðandi veiðar úr deilistofnunum norsk-íslenskri síld, kolmunna og makríl. Því nær ákvörðun ársfundarins eingöngu til sameiginlegs viðmiðunar heildaraflamarks, að ríkin skuli setja sér takmarkanir og að öðrum en aðildarríkjum sé óheimilt að veiða úr þessum stofnum á úthafinu.

Á grunni vísindaráðgjafar ICES var að auki samþykkt áframhaldandi bann við veiðum á karfa á Reykjaneshrygg. Rússland greiddi atkvæði, eins og hingað til, á móti þessu veiðibanni og mun líklega mótmæla reglunum formlega til að vera ekki bundið af þeim. Önnur aðildarríki munu framfylgja veiðibanninu og ýmsum reglum sem þrengja að stöðu þeirra rússnesku skipa sem taka þátt í veiðunum.”

Nánar má lesa um málið hér.

Deila: