Barði kominn úr slipp

Barði NK hefur verið í flotkví Slippsins á Akureyri í tvær vikur en fór á flot í gær að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar.
Þar segir að almennu viðhald hafi verið sinnt á skipinu. Í fréttinni segir að Barði sé á leið til Neskaupstaðar þar sem hann taki veiðarfæri til kolmunaveiða. Leiðin liggi svo í færeyska lögsögu.
Theodór Haraldsson er skipstjóri. Rætt er við hann er fréttinni. Í máli hans kemur fram að dálítil óvissa sé í kortunum vegna veðurútlits.
„Hann spáir illa á fimmtudaginn og þá verður örugglega ekki veiðiveður. Það er búið að vera ágætis nudd hjá kolmunnaskipunum í færeysku lögsögunni að undanförnu og menn eru bara bjartsýnir hvað veiðar varðar. Við erum auðvitað ólmir í að komast á sjóinn eftir þetta hlé,” segir Theodór.