Ísfélagið kaupir pökkunarlausn frá Marel

Deila:

Ísfé­lagið hf. hef­ur fjár­fest í Ro­bobatcher Box pökkunarlausn frá Mar­el. Frá þessu greinir í fréttatilkynningu. Pökkunargeta fyrirtækisins mun eflast fyrir vikið. Í tilkynningunni segir að um sé að ræða stórt skref í að auka sjálfvirkni og skilvirkni bolfiskvinnslu félagsins í Vesetemannaeyjum.

Robobatcher Box er hönnuð til að raða bakflökum og hnökku í þriggja eða fimm kílóa kassa með mikilli nákvæmni og hraða, í samfræmi við meðalþyngd og stykkjafjölda.

„Lausn­in er tveggja brauta pökk­un­ar­lína sem flokk­ar og raðar fersk­um bit­um í frauðkassa, ásamt færslu­kerfi, tékkvog­um og límmiðaá­setn­ingu,“ seg­ir í fréttatil­kynn­ing­unni.

Þar segir að þessi fjárfesting sé hluti af stækkunarverkefni með nýjum lausfrysti. Tekist hafi að auka afköst í pökkun ferskra afurða án þess að fjölga þurfi starfsfóolki á línunni.

„Ef Mar­el held­ur áfram að þróa lausn­ir sem bæta af­komu fram­leiðslu­lín­unn­ar, þá höld­um við áfram að velja Mar­el,“ er haft eft­ir Birni Brim­ar Há­kon­ar­syni fram­leiðslu­stjóra Ísfé­lags­ins í fréttatilkynningunni.

Á myndinni takast í hendur Björn Brimar frá Ísafélaginu og Sindri Magnason, sölumaður hjá Marel.

Deila: