Kapp kaupir bandarískt félag

Deila:
Ólafur Karl Sigurðarson KAPP

KAPP, íslenskt tæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í kæliþjónustu, framleiðslu, sölu og þjónustu á búnaði fyrir sjávarútveg, fiskeldi, kjúklingavinnslu og annan iðnað hefur tilkynnt um kaup á meirihlutanum í bandaríska félaginu Kami Tech Inc. í Seattle. Frá þessu greinir í frétt á vef Kapp. Þar segir að með kaupunum sé KAPP að taka stórt skref í því að færa íslenskt hugvit og tækniþekkingu á fiskiðnaði á markað í Ameríku.

Í fréttinni segir að Kami Tech framleiði vélar og búnað úr ryðfrýju stáli og áli fyrir sjávarútvegsfyrirtæki og matvælafyrirtæki á svæðinu og þjónusti fyrirtæki á borð við American Seafoods, Trident Seafoods og Golden Alaska Seafoods sem séu allt sameiginlegir viðskiptavinir með KAPP. 

Um er að ræða stefnumarkandi kaup til frekari vaxtar KAPP á erlendum mörkuðum. Kami Tech er staðsett á Pier 90 í Seattle þar sem stór fiskiskip fjölda útgerða leggjast að bryggju til að sækja sér viðhaldsþjónustu, kaupin eru liður í aukinni sókn KAPP á vesturströnd Bandaríkjana.”

Sjá nánar hér.

Deila: