Getur fóðrað 16 kvíar í einu

Deila:

Nýtt og öflugt fóðurskip á vegum Fiskeldis Austfjarða kom til heimahafnar á  Djúpavogi í síðustu viku. Hið nýja skip er afar glæsilegt og búið nýjustu tækni við fóðrun. Frá skipinu er fóðraður lax í fiskeldi fyrirtækisins í Berufirði. Þetta nýja skip er mikil lyftistöng fyrir atvinnulífið og vaxandi laxeldi á Djúpavogi.

Nýja fóðurskipið ber um 600 tonn af fóðri. Með hinu nýja skipi opnast sá möguleiki að fóðra í 16 kvíar í einu. Er þetta fyrsta skip sinnar tegundar sem er afhent þannig. Um borð í skipinu er mjög góð vinnuaðstaða  fyrir áhöfn og aðra þá sem þar starfa.

Nýja fóðurskipið ber heitið Hvaley.  Fyrir er á vegum Fiskeldis Austfjarða, fóðurskipið Úlfsey.

Deila: