Þorskurinn undir meðallagi í þyngd

Deila:

Stofnvísitala þorsks er svipuð og undanfarin þrjú ár og er yfir meðaltali áranna 1996-2024. Yngsti árgangur þorsks mælist undir meðalstærð í fjölda en 1 árs þorskur er hins vegar nálægt langtímameðaltali. Meðalþyngdir flestra árganga þorsks mældust undir meðaltali áranna 1996–2024.

Þetta kemur fram á vef Hafró þar sem niðurstöður stofnmælingar botnfiska frá haustinu eru birtar. Leiðangurinn fór fram dagana 27. september til 29. október. Verkefnið hefur verið framkvæmt með sambærilegum hætti frá árinu 1996.

Stofnvísitala ýsu er há líkt og tvö síðustu ár og sýnir hraða stækkun stofnsins í kjölfar góðrar nýliðunar. Árgangar ýsu sem nú eru 3–5 ára mælast yfir meðalstærð en árgangar 0–3 ára undir meðalstærð í fjölda.

Nánar má sjá niðurstöðurnar hér.

Deila: